Innlent

Tékknesku forsetahjónin í heimsókn

Forseti Tékklands, Václav Klaus, og frú Livia Klausová, eiginkona hans, munu koma hingað til lands í opinbera heimsókn þann 21. ágúst næstkomandi í boði forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Auk forsetans verða utanríkisráðherra Tékklands og nokkrir embættismenn með í för. Václav Klaus var á sínum tíma í framvarðasveit andófshreyfingarinnar í Tékklandi og var einn af þeim mönnum sem átti mikinn þátt í að umbylta efnahgaslífi landsins eftir að lýðræði komst á. Tékknesku forsetahjónin munu dvelja hér á landi frá 21. ágúst til þess 23.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×