Innlent

Vilja ekki umsóknir samkynhneigðra

Óttast er að erlend ríki hætti að senda munaðarlaus börn hingað til lands fái samkynhneigðir rétt til ættleiðinga. Ekkert þeirra fimm ríkja sem Íslendingar ættleiða frá leyfa slíkt. Ef lögin um aukin réttindi samkynhneigðra til fjölskylduþáttöku verða samþykkt á næsta þingi þarf dómsmálaráðuneytið að hefja viðræður við nýtt land sem væri tilbúið að taka við umsóknum frá samkynhneigðum því þau lönd sem Ísland er í samstarfi við í dag taka ekki við þeirra umsóknum. Þegar fréttastofa Stöðvar 2 lagðist yfir bækurnar í dag reyndist snúið að finna land sem tekur við þess konar umsóknum en spurning er hvað ráðuneytið komi til með að finna, leggi það næga vinnu í verkið. Samkvæmt ættleiðingarlögum geta hjón eða karl og kona sem hafa verið í óvígðri sambúð í að minnsta kosti 5 ár, ættleitt barn. Í dag kom fimm lönd til greina: Indland, Kína, Kólumbía, Tékkland og Taíland. Undanfarið hafa þó einhleypar konur getað ættleitt börn til dæmis frá Kína en í umsóknarferlinu þarf þó að koma skýrt fram að ekki sé um samkynhneigða konu að ræða. Kólumbía og Indland taka stundum við umsóknum frá einhleypum konum en bæði Taíland og Tékkland setja það skilyrði í öllum tilfellum að umsækjendur séu giftir. Því geta einhleypir ekki ættleitt þaðan og eins og staðan er í dag geta samkynhneigðir ekki sótt um hjá þeim löndum sem Ísland er í samstarfi við. Fólk í ættleiðingargeiranum hræðist að verði frumættleiðing samkynhneigðra leyfð á Íslandi geti það farið illa í stjórnvöld þeirra landa sem Ísland skiptir við í dag og væri jafnvel möguleiki á að lokað yrði alfarið fyrir ættleiðingar frá því landi. Þetta hefur hins vegar ekki verið raunin í Svíþjóð. Bretar, Svíar og Hollendingar heimila samkynhneigðum að ættleiða börn en í Hollandi takmarkast ættleiðingin við hollensk börn. Í Svíþjóð er samkynhneigðum hins vegar heimilt að ættleiða jafnt innlend sem erlend börn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×