Innlent

Fylgi Sjálfstæðisflokks mest

Í skoðanakönnunn Plússins um hvaða flokk Reykvíkingar hyggist kjósa í komandi borgarstjórnarkosningum kemur í ljós að 37 prósent kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 22 prósent Samfylkinguna, 8 prósent Vinstri - græna og aðeins 3 prósent ætla að kjósa Framsóknarflokkinn og enn færri, eða 1 prósent, ætla að kjósa Frjálslynda. Óákveðnir voru 28 prósent, en alls tóku rúmlega 800 manns þátt í könnunninni sem send var með rafrænum hætti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×