Innlent

Stefán Jón vill fyrsta sætið

Í fréttatilkynningu frá Stefáni Jóni Hafstein kemur fram að hann ætlar að gefa kost á sér í fyrsta sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann segir orðrétt. "Ég hlaut mjög afgerandi og mikinn stuðning í það sæti í prófkjöri fyrir síðustu kosningar, og í kjölfarið hef ég gegnt mörgum ábyrgðarstöðum í borgarstjórn. Við þau störf hef ég fundið fyrir góðum stuðningi borgarbúa og er því fús að gefa kost á mér áfram í það sæti. Þetta er sagt með þeim eðlilegu fyrirvörum sem gera verður um framvindu mála á næstunni, enda margt óráðið um hvernig staðið verður að málum hjá öllum flokkum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×