Innlent

Stefnir í stórsigur vinstrimanna

Allt útlit er fyrir að vinstri flokkarnir í Noregi vinni stórsigur í þingkosningunum sem fara fram í landinu í næsta mánuði. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Norska ríkissjónvarpið og norska Dagblaðið fá vinstri flokkarnir 90 þingsæti af 169 á norska Stórþinginu, en um þriðjungur Norðmanna ætlar að kjósa Verkamannaflokkinn. Gangi þetta eftir er ljóst að Jens Stoltenberg, leiðtogi Verkamannaflokksins, verður næsti forsætisráðherra landsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×