Innlent

R-listinn héldi meirihlutanum

Reykjavíkurlistinn hefði nú stuðning tæplega helmings Reykjavíkurbúa, hefðu samstarfsflokkarnir þrír ákveðið að bjóða aftur fram undir hans nafni. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Fréttablaðsins. Spurt var hvaða lista fólk myndi kjósa, byði R-listinn fram aftur. 48,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust myndu kjósa R-listann, en 47,8 prósent Sjálfstæðisflokkinn. 1,9 prósent sögðust myndu kjósa Frjálslynda flokkinn og 1,3 prósent eitthvað annað. Ef þetta yrði niðurstaða kosninganna fengi Reykjavíkurlistinn átta borgarfulltrúa en Sjálfstæðisflokkur sjö. Aðrir fengju ekki borgarfulltrúa kjörinn. Taka verður þó tillit til þess að munurinn á milli fylgis R-listans og Sjálfstæðisflokks er innan skekkjumarka. Í sömu könnun var spurt hvaða lista fólk kysi, yrði boðað til kosninga nú. R-listaflokkarnir fengju samkvæmt henni 43,3 prósenta fylgi en Sjálfstæðisflokkur 53,5 prósent. Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur segir tvær túlkanir mögulegar. Annars vegar er mögulegt að sameiginlegt framboð auki fylgi vinstriflokkana. Hins vegar, sem sé líklegra, geti mismunurinn verið vegna aðferðafræði skoðanakönnunarinnar, að óákveðnir séu fólk sem viti að það muni ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn, en sé óákveðið um hvern vinstri flokkanna það vill. "En það er langsamlega líklegast að það skili sér á einhvern vinstriflokkinn, þótt það sé ekki víst." "Þetta sýnir að Reykvíkingar hafa kunnað betur að meta hið góða starf Reykjavíkurlistans síðustu tólf árin en ýmsir þeirra sem að þeim viðræðum komu," segir Páll Halldórsson, formaður fulltrúaráðs Samfylkingarfélaganna í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna í Reykjavík, segir þetta til marks um að stuðningsmenn R-listans hafi ekki gert upp hvaða flokk þeir muni kjósa.
Fylgi framboða í skoðanakönnun Fréttablaðsins og borgarstjórnarkosningum 2002.Fbl-graf/Sæmundur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×