Innlent

Leggur fram sameiningartillögu

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, mun á fundi borgarstjórnar á morgun leggja fram tillögu um að Reykjavíkurborg verði falið að leita eftir viðræðum við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðisins um sameiningu. Um yrði að ræða sameiningu Reykjavíkur við sveitarfélögin Kópavog, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ, Garðabæ, Hafnarfjörð og Álftanes. Ólafur segir að augljósar landfræðilegar ástæður mæli með sameiningunni en einnig myndi yfirbygging stjórnsýslunnar minnka til muna sem væri stór kostur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×