Innlent

Davíð gefur engar yfirlýsingar

Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kvaðst fyrir fund í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í kvöld ekki ætla að gefa neinar yfirlýsingar á fundinum um framboð til formanns á landsfundi flokksins í næsta mánuði. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir hitti Davíð við Valhöll nú undir kvöld. Davíð Oddson sagði það þó af og frá þegar hann mætti til fundarins í Valhöll. Hann sagðist ekki ætla að gefa neinar yfirlýsingar þess efnis hvort að hann yrði formaður áfram. Hann sagði fundinn snúast um borgarmál og prófkjör og þess háttar. Hann sagist ekki vera með neinar yfirlýsingar og ætlaði bara að ræða borgarmálin. Fyrir fundinum lá að afgreiða hvort að fram færi prófkjör 4. og 5. nóvember vegna framboðs til borgarstjórnarkosninga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×