Innlent

Miðstjórnin einnig boðuð á fund

Ekki aðeins þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðaður á fund í Valhöll í dag heldur einnig miðstjórn flokksins, en ráðherra og þingmenn flokksins grunar að Davíð Oddsson utanríkisráðherra muni þá tilkynna að hann hætti sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Tilefni fundarins var ekki gefið upp við boðunina og þó sat þingflokkurinn fund síðast í gær. Hvorki ráðherrar né óbreyttir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem fréttastofa Bylgjunnar og Stöð 2 hefur talað við, segjast vita hvert fundarefnið sé en einn þeirra sagði að þá grunaði alla það sama, að Davíð Oddsson hygðist gefa yfirlýsingu um pólitíska framtíð sína. Enginn ímyndi sér að Davíð Oddsson láti kalla saman þingflokkinn aftur, daginn eftir þingflokksfund, til að skýra frá því að hann hyggist halda áfram sem formaður flokksins, en hann hefur gegnt því embætti frá árinu 1991.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×