Innlent

Fátæklegra þjóðlíf

"Flokksstarfið, störf á þinginu og þjóðlífið verður mun fátæklegra þegar Davíð hverfur af þessum vettvangi," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og borgarfulltrúi. "Ég mun sakna hans og tel að þjóðin standi í afskaplega mikilli þakkarskuld við hann. Þegar hann var borgarstjóri, þá var borgin svo sterk að það voru uppi hugmyndir um að skattleggja borgina sérstaklega. Á meðan hann hefur stýrt landsmálunum höfum við séð hag þjóðarinnar dafna jafnt og þétt. Þó svo að hann hafi verið umdeildur, eins og allt gott fólk, þá held ég að flestir komi til með að sakna hans." Guðlaugur segist viss um að Geir H. Haarde muni fá góðan stuðning flokksmanna sem formaður Sjálfstæðisflokksins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×