Erlent

Töluverð spenna í Úkraínu

Töluverð spenna er í Úkraínu eftir að Viktor Júsjenkó, forseti landsins, rak Júlíu Tímosjenko forsætisráðherra og ríkisstjórn hennar. Júsjenkó hvatti í morgun þingið til að styðja nýjan forsætisráðherra og nýja stjórn en stjórnmálaskýrendur segja afleiðingar þessa geta orðið alvarlegar. Það geti reynst Júsjenkó afdrifaríkt snúist Tímosjenko gegn honum auk þess sem tiltrú Vesturlanda á Júsjenkó og aðra leiðtoga appelsínugulu uppreisnarinnar í Úkraínu sé nú minni en áður vegna stjórnarkreppunnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×