Erlent

Veltur á viðbrögðum Tymosjenkó

Pólitísk framtíð Viktors Júsjenkós, forseta Úkraínu, veltur á því hvort Júlía Tymosjenkó sem hann rak í gær, snúist gegn honum eður ei. Júsjenkó rak Tymosjenkó, sem var forsætisráðherra, að sögn til að koma á friði innan ríkisstjórnarinnar og slá á ásakanir um græðgi og svindl innan stjórnarinnar. Júsjenkó hvatti í dag þingið til að styðja nýja ríkisstjórn en aðgerðir hans hafa valdið nokkrum ugg á Vesturlöndum og efasemdum um hversu traustar lýðræðisumbætur í Úkraínu eru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×