Innlent

Vaxandi yfirgangur framkvæmdavalds

Formaður Vinstri - grænna segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um hvernig verja beri ágóðanum af símasölunni dæmi um vaxandi yfirgang framkvæmdavaldsins gagnvart Alþingi. Þarna sé verið að ráðstafa gríðarlegum fjármunum í eigu þjóðarinnar fram yfir næstu tvennar alþingiskosningar, án þess að málið sé rætt annars staðar en í stjórnarflokkunum. Steingrímur J. Sigfússon segir að þinginu sé sýnd vaxandi óvirðing og fjárlaganefnd sé varla til annars en að telja baunir. Allar stórar ákvarðanir séu teknar fyrirfram af framkvæmdavaldinu. Hann kveðst gagnrýna vinnubrögðin og aðferðirnar þótt verkefnin séu öll mjög þörf. „Mér finnst ansi langt gengið þegar framkvæmdavaldið tekur sér fjárveitingavald með þessum hætti og ákveður, jafnvel mörg kjörtímabil fram í tímann, að svo og svo miklir fjármunir skuli fara úr ríkissjóði í þetta verkefnið eða hitt,“ segir Steingrímur. Og hann segir lágmarkskurteisi við löggjafar- og fjárveitingavaldið að kalla þetta tillögur en tilkynna þetta ekki „með pompi og prakt“ eins og endanlegar ákvarðanir.   Steingrímur segir að sú verkaskipting sem stjórnskipan landsins geri ráð fyrir sé sú að framkvæmdavaldinu beri að undirbúa og leggja fyrir Alþingi tillögur um útgjöld ríkisins og þingið sé því í aðstöðu til að hafa áhrif á tillögurnar og gera á þeim einhverjar breytingar. Stjórnarflokkarnir hafi hist í fimm mínútur til að stimpla ákvarðanir stjórnarherranna um hvernig Símafénu skyldi varið; þá þegar hafi verið búið að boða til blaðamannafundar til að kynna þær. Og Steingrímur spyr hvers vegna fjárlaganefnd sitji yfir því á haustin „að telja einhverjar baunir, færa til fimm eða tíu þúsund krónur hér eða þar, þegar stóru málin eru meðhöndluð af framkvæmdavaldinu með þessum hætti?“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×