Erlent

Líklega stórsigur Koizumis

Útgönguspár benda til þess að flokkur Koizumis, forsætisráðherra Japans, hafi unnið stórsigur í þingkosningunum sem fram fóru í dag. Endanleg úrslit verða ekki tilkynnt fyrr en á morgun en spár sýna að LPD, flokkur Koizumis, hafi unnið á bilinu 285-325 þingsæti af 480. Koizumi boðaði til kosninga eftir að þingið felldi tillögu hans um að einkavæða póstkerfið sem jafnframt gegnir stóru hlutverki á fjármála- og tryggingamarkaði. Almenningur virðist hins vegar bera traust til Koizumis og hugmynda hans um hvernig hleypa megi nýju lífi í staðnað efnahagslíf landsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×