Innlent

Bjarni ekki í varaformanninn

Bjarni Benediktsson þingmaður ætlar ekki að bjóða sig fram sem varaformann Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. "Ég var aldrei þeirrar skoðunar að ég ætti að fara í þetta framboð," segir Bjarni, sem er formaður allsherjarnefndar Alþingis. Hann gaf sér hins vegar tíma til að hugsa málið eftir að hafa fengið hvatningu um að fara fram. "En ég er enn sömu skoðunar." Hann segist treysta Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vel fyrir embættinu og ætlar að styðja hana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×