Innlent

Guðný Hildur í 3. til 6. sæti

Guðný Hildur Magnúsdóttir félagsráðgjafi hefur ákveðið að gefa kost á sér í þriðja til sjötta sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Guðný hefur setið í jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar frá árinu 2002 og verið varaborgarfulltrúi frá árinu 2003. Guðný hefur setið í stjórn Vinstri grænna í Reykjavík frá árinu 2002. Þau málefni sem eru Guðnýju mest hugleikin eru velferðarmál, jafnréttismál, málefni minnihlutahópa, þátttökulýðræði, félagsauður og að draga úr neysluhyggju í samfélaginu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×