Innlent

Málaferli ef olíufélög borgi ekki

Reykjavíkurborg krefur olíufélögin um 150 milljónir króna í bætur vegna verðsamráðs olíufélaganna við útboð á olíuviðskiptum borgarinnar árið 1996. Borgarstjóri hótar málaferlum ef þau borga ekki. Stóru olíufélögin þrjú, Olís, Skeljungur og ESSO, höfðu með sér samráð þegar félögin buðu í olíuviðskipti Reykjavíkurborgar og fyrirtækja borgarinnar árið 1996. Þetta hafa forsvarsmenn olíufélaganna viðurkennt. Borgaryfirvöld hafa nú ákveðið að krefja olíufélögin um bótagreiðslu vegna þess skaða sem borgin telur sig hafa orðið fyrir. Samkvæmt útreikningum borgarinnar nemur tap borgarinnar 150 milljónum króna. Þessi niðurstaða er fundin með því að reikna út hver sparnaður borgarinnar hefði verið ef henni hefðu boðist sömu kjör eftir útboðið 1996 og henni bauðst eftir útboð árið 2001 þegar ekkert samráð var milli olíufélaganna. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segist telja einsýnt að borgarbúar og Reykjavíkurborg hafi verið hlunnfarin af hálfu olíufélaganna og það sé sjálfsagður réttur borgarinnar að sækja peningana til olíufélaganna enda ekki um neitt smáræði að ræða, eða 150 milljónir. Kristinn Hallgrímsson, lögmaður ESSO, segir að þó sé um það deilt að olíufélögin hafi haft með sér samráð greini umbjóðendur sína og borgina á um hver áhrifin væru og hvort og þá hversu miklar bætur olíufélögin ættu að greiða. Árni Ármann, lögmaður Skeljungs, sagði menn vera að fara yfir kröfugerð borgarinnar og að henni yrði svarað áður en frestur sem borgin gefur til bótagreiðslu rennur út 14. október. Aðspurð hvað borgin ætli að gera ef olíufélögin hafni bótakröfunni segir Steinunn Valdís að hún eigi eftir að sjá að þau geri það. Verði það niðurstaðan verði málið rekið fyrir dómstólum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×