Innlent

Efla á víkingasveitina til muna

Víkingasveit Ríkislögreglustjóra fær 112 milljónum króna hærri fjárveitingu á næsta ári en hún fékk í ár samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Ástæðan er að efla á sveitina til muna. Mest fé fer í að fjölga sérsveitarmönnum um níu í Reykjavík og um sex í Keflavík auk þess sem ný bifreið verður keypt fyrir sveitina. Þá fara 15 milljónir í að breyta skipulagi lögreglunnar á Akureyri svo fjórir sérsveitarmenn verði þar í fullu starfi og almennum lögreglumönnum fjölgi um fjóra. Fjórtán milljónir eru svo eyrnamerktar vopnakaupum og kaupum á öðrum búnaði fyrir víkingasveitina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×