Erlent

Tyrkir svartsýnir varðandi ESB

Þriðjungur Tyrkja er sannfærður um að landið verði aldrei samþykkt sem aðili að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í könnun sem birtist í nýjasta tímariti Time. Þá eru einnig færri Tyrkir á því að landinu sé betur borgið innan sambandsins nú en fyrir ári síðan. Sextíu prósent Tyrkja telja að þeir muni hafa það betra ef landið gengur í sambandið. Fyrir ári síðan var þetta hlutfall rúmlega sjötíu prósent.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×