Innlent

Áreiðanleikakönnun fylgi fjárlögum

Óskað var eftir því að fjármálaráðherra pantaði áreiðanleikakönnun til að framvísa með fjárlagafrumvarpinu á Alþingi í dag og bent var á að forsendur fjárlagafrumvarpa stæðust iðulega ekki skoðun. Þá var ráðherra sakaður um auglýsingamennsku við kynningu frumvarpsins. Jón Bjarnason sagði Seðlabankann tala um vaxandi óstöðugleika og verkalýðshreyfinguna segja að kjarasamningar væru í uppnámi. Útflutningsgreinarnar væru að kikna undan háu gengi en fjármálaráðherra virtist líta svo á að þjóðhagsspár væru einskonar tölvuleikur. Til að mynda hefðu spár um gengisvísitölu krónunnar ekki gengið eftir ár eftir ár. Jón spurði enn fremur hvort ráðherra væri tilbúinn að kaupa sér áreiðanleikakönnun því tekist væri á um trúverðugleika og þar þyrfti ríkisvaldið að ganga fram með góðu fordæmi. Árni Mathiesen fjármálaráðherra svaraði Jóni og sagði enga sérstaka ástæðu til að kaupa slíka könnun.  Helgi Hjörvar sakaði ráðuneytið um auglýsingamennsku og sagði forsendur fjárlagafrumvarpa iðulega ekki standast. Nú væru fjáraukalögin eftir og ýmis annar kostnaður. Ríkisreikningur myndi sýna allt aðra niðurstöðu. Helgi tók fjölmörg dæmi, benti meðal annars á að þjóðarútgjöld væru ekki að aukast um sjö prósent, eins og áætlanir hefðu gert ráð fyrir, heldur 12,8 prósent. Helgi sagði enn fremur að því miður hefði það verið lenska í samfélaginu að í upphafi þings væri fjárlagafrumvarpið notað sem einhvers konar áróðurstæki. Það væru haldnir blaðamannafundir með hagstæðum glærusýningum og tölfræði í fínum sölum úti í bæ og þess gætt að stjórnarandstaðan fengi ekki frumvarpið fyrr en nokkrum tímum áður þannig að tölfræðin upp úr frumvarpinu væri örugglega öll tölfræði ríkisstjórnarinnar. Þetta væru kölluð sólskinsfrumvörp og mesti afgangur Íslandssögunnar og sitthvað fleira en reynslan væri sú, með ánægjulegri undantekningu í ár vegna hinnar miklu þenslu, að áform ríkisstjórnarinnar gengju engan veginn eftir. Þótt afgangurinn yrði ánægjulegur í ár gengju áætlanir samt ekki eftir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×