Skilorðsdómur fyrir fjárdrátt 14. október 2005 00:01
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í gær fyrrverandi framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Vestfirðinga í tíu mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir fjárdrátt í opinberu starfi. Manninum var gefið að sök að hafa dregið sér ríflega sautján milljónir króna í starfi sínu sem framkvæmdastjóri Fjórðungssambandssins frá byrjun árs 2002 til miðs september 2003. Fram kemur í dómnum að ákærði hafi viðurkennt fjárdráttinn en hann mótmælti því að hann hefði verið í opinberu starfi. Þá segir einnig í dómnum að ákærði hafi endurgreitt féð sem hann dró sér að verulegu leyti á umræddu tímabili og hann hafi nú lokið við að endurgreiða það allt. Það verði honum hins vegar til þyngri refsingar að hann hafi brotið af sér í opinberu starfi og að fjárhæðin hafi verið há og því þykir tíu mánaða dómur, skilorðsbundinn til þriggja ára, hæfilegur. Auk þess var ákærði dæmdur til að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, alls 160 þúsund krónur.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Kafarar sóttu mann úr bíl sem fór í höfnina Innlent „Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“ Innlent Kristrún ekki sein í Kryddsíld: „Ég skil ekki hvernig þetta var hægt“ Innlent Hróshringur formanna: „Það liggur fyrir mér að verða markþjálfi“ Innlent Yazan Tamimi er maður ársins Innlent Áttræð kona sakar bæinn um mismunun vegna trúar Innlent Bak við tjöldin: Óheppileg hlátursköst og ráðherrar í ruglinu Innlent Kannast ekkert við ólgu innan flokksins vegna landsfundar Innlent Flokkur fólksins dalar eftir kosningar Innlent Vita ekki hvenær þau komast heim með líkamsleifar drengsins síns Innlent Fleiri fréttir Hróshringur formanna: „Það liggur fyrir mér að verða markþjálfi“ „Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“ Kannast ekkert við ólgu innan flokksins vegna landsfundar Yazan Tamimi er maður ársins Kristrún ekki sein í Kryddsíld: „Ég skil ekki hvernig þetta var hægt“ Fyrsti símafundurinn við utanríkisráðherra Úkraínu Kafarar sóttu mann úr bíl sem fór í höfnina Hér eru brennurnar á höfuðborgarsvæðinu Flokkur fólksins dalar eftir kosningar Árið gert upp í Kryddsíld 2024 Varnargarðsmenn maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Breytingar á fylgi stjórnarflokka, norðurljósadýrð og undirbúningur Kryddsíldar Vara við svikapósti í nafni Skattsins Hvar er opið um áramótin? Köstuðu flugeldum upp á svalir fólks Bak við tjöldin: Óheppileg hlátursköst og ráðherrar í ruglinu Áttræð kona sakar bæinn um mismunun vegna trúar Nokkura bíla árekstur á Vatnaleið Flestir ánægðir með Kristrúnu en mest óánægja með Bjarna Táningspiltur mögulega með reykeitrun eftir flugeldafikt Vita ekki hvenær þau komast heim með líkamsleifar drengsins síns Ákall eftir réttmætari dreifingu á arði Samfélag í sárum, ný könnun og kíkt á bak við tjöldin Vilja ekki fresta fundi í ljósi nýs raunveruleika í pólitík 3,7 milljónir fiska drápust eða var fargað Gæsluvarðhald í stóru fíkniefnamáli framlengt Laun hjúkrunarfræðinga nú sambærileg við BHM Öflugasta eftirlit í áratugi veltur á fjármögnun stjórnvalda Jón Steindór aðstoðar Daða Má Ríkisráð fundar ekki á morgun eins og hefð er fyrir Sjá meira