Erlent

Hnífjafnt í Póllandi

Fylgi frambjóðendanna tveggja í forsetakosningunum í Póllandi er nánast hnífjafnt aðeins tveimur dögum fyrir síðari umferð kosninganna. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum er fylgi Donalds Tusks 48,8 prósent en fylgi Lechs Kaczynskis 50,2 prósent. Stjórnmálaskýrendur segja útilokað að spá fyrir um hvor stendur uppi sem sigurvegari eftir kosningarnar á sunnudag en skekkjumörk eru 2,8 prósent.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×