Sport

Puerta dæmdur í átta ára bann

Puerta fékk átta ára keppnisbann
Puerta fékk átta ára keppnisbann NordicPhotos/GettyImages
Argentíski tennisleikarinn Mariano Puerta hefur verið dæmdur í átta ára keppnisbann eftir að hann féll á lyfjaprófi eftir opna franska meistaramótið á árinu. Í blóði hans fundust ólögleg örvandi efni, en þetta var í annað sinn á tveimur árum sem hann fellur á lyfjaprófi og því var refsingin nú jafn hörð og raun bar vitni. Puerta þarf einnig að skila öllum verðlaunum sem hann hefur unnið til síðan á mótinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×