Óttast um afdrif nashyrninga 13. júlí 2006 05:00 Svartur nashyrningur Óttast er að veiðiþjófar hafi útrýmt svörtum vesturafrískum nashyrningum. MYND/nordicphotos/afp
Vísindamenn telja að búið sé að útrýma svörtum nashyrningum í Vestur-Afríku, en margar tegundir nashyrninga standa ákaflega höllum fæti vegna aðgerða veiðiþjófa. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Í leiðangri dýraverndunarsamtakanna IUCN fyrr á þessu ári til seinustu þekktu heimkynna nashyrninganna í Vestur-Afríku, í Kamerún, fundu leiðangursmenn engin merki um lifandi dýr, en hins vegar fjölmörg ummerki eftir veiðiþjófa, hefur BBC eftir Richard Emslie, talsmanni IUCN. Árið 2002 töldu sérfræðingar að eingöngu tíu svartir nashyrningar væru enn á lífi í Kamerún, en þeir voru dreifðir yfir stórt svæði sem gerði skepnunum erfiðara fyrir að eignast afkvæmi. Seinustu 150 ár hefur nashyrningum fækkað mjög í Afríku vegna veiðiþjófnaðar. Hefur hvítum nashyrningum í Norður-Afríku verið nær útrýmt, en talið er að eingöngu fjögur dýr séu eftir af þeim stofni. Hins vegar hafa varnaraðgerðir yfirvalda á síðustu árum gegn veiðiþjófum í Austur- og Suður-Afríku lánast vel, og þar fjölgar bæði hvítum og svörtum nashyrningum. Sérstaklega hefur tekist vel til með hvíta nashyrninga í Suður-Afríku, en þeim hefur fjölgað úr 30 dýrum árið 1895 í nær 15.000 dýr nú.
Erlent Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Sjá meira