Mosaic yfirtekur Rubicon 12. september 2006 09:52 Derek Lovelock Derek er forstjóri Mosaic Fashions, en fyrirtækið hefur nú lokið áreiðanleikakönun á Rubicon Retail.
Mosaic Fashions hefur nú lokið áreiðanleikakönnun á bókum bresku smásölukeðjunnar Rubicon Retail og hefur skrifað undir bindandi samning þess efnis að kaupa öll hlutabréf í keðjunni. Heildarvirði viðskiptanna er um 320 milljónir punda, sem jafngildir um 43 milljörðum íslenskra króna. Til þess að samningurinn geti gengið í gegn er nú beðið samþykkis hluthafa og breskra samkeppnisyfirvalda. Í fréttatilkynningu frá Mosaic Fashions segir að því verði væntanlega lokið innan 45 daga frá undirskrift samningsins og verður kallað til hluthafafundar hjá Rubicon Retail innan skamms. Rubicon rekur meðal annars Shoe Studio, sem hefur mörg þekkt vörumerki á sínum snærum, auk kvenfatamerkjanna Warehouse og Principles. Með samrunanum verður til ein stærsta kvenfatasmásölukeðja Bretlandseyja, með um 1.700 verslanir í 27 löndum. Áætlað er að heildarársvelta sameinaðs félags verði um 818 milljónir punda, sem nemur um 110 milljörðum íslenskra króna. - hhseIn STÆRSTA verslanakeðja KVENFATA VERÐUR TIL Með samruna Mosaic Fashions verður til ein stærsta kvenfatasmásölukeðja á Bretlandseyjum.
Viðskipti Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira