Íranskur banki á svörtum lista 13. september 2006 00:01 Stuart Levey segir íranska bankann Saderat hafa séð um millifærslur á fjármunum til hryðjuverkasamtaka. MYND/AFP
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur sett íranska ríkisbankann Saderat á svartan lista vestanhafs. Að sögn Stuarts Levey, yfirmanns deildar innan bandaríska fjármálaráðuneytisins sem sér um mál er tengjast hryðjuverkastarfsemi og fjármálanjósnum, er bankinn grunaður um að hafa millifært fjármuni til hryðjuverkasamtaka. Saderat-bankinn hefur ekki haft formlega starfsemi í Bandaríkjunum en honum hefur verið kleift að flytja peninga til og frá Bandaríkjunum. Levey sagði í síðustu viku að fjármálastofnanir í Bandaríkjunum hefðu skorið á öll samskipti við bankann, sem er einn sá stærsti í Íran, vegna færslna á tugmilljónum Bandaríkjadala til ýmissa hryðjuverkasamtaka, meðal annars Hezbollah-samtakanna í Líbanon, í gegnum árin. Kvartanir vegna þessa hafa hvorki borist frá ráðamönnum í Íran né forsvarsmönnum bankans vegna þessa, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC. Viðmælendur útvarpsins segja hins vegar að bankinn hafi þjónað mikilvægu hlutverki sem milliliður fyrir viðskipti Írana við markaði víða um heim.
Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira