Starfsmannastjóri Ford segir upp 27. september 2006 00:01 Ford Alan Mulally, forstjóri Ford, og Bill Ford, fráfarandi forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækisins, á blaðamannafundi í byrjun september. markaðurinn/AP
Steven Hamp, starfsmannastjóri bandaríska bílaframleiðandans Ford og næstráðandi Alan Mulally forstjóra, ætlar að láta af störfum hjá fyrirtækinu öðru hvoru megin við næstu áramót. Hamp varð starfsmannastjóri hjá bílaframleiðandanum í nóvember á síðasta ári undir stjórn Bills Ford, fráfarandi forstjóra, sem réð hann til starfans. Þeir Hamp eru mágar. Ford hefur ekki tilkynnt opinberlega um brotthvarf Hamps frá fyrirtækinu en Tom Hoyt, talsmaður fyrirtækisins, staðfesti uppsögnina í samtali við fréttastofuna Associated Press í byrjun vikunnar. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær Hamp lætur af störfum né hvað hann hyggst taka sér fyrir hendur. Þá hefur bílaframleiðandinn ekki ráðið í stöðu hans. Nokkur umskipti hafa orðið hjá æðstu yfirmönnum Ford í mánuðinum en í byrjun september lýsti Bill Ford, langafabarn stofnandans og fráfarandi forstjóri Ford, að hann hygðist stíga úr forstjórastóli og mæltist til þess að annar yrði ráðinn í hans stað til að snúa gríðarlegu rekstrartapi fyrirtækisins við. Alan Mulally, fyrrum forstjóri flugvélaframleiðandans Boeing, var ráðinn í hans stað. Ekki liggur fyrir hvort það hafi ráðið nokkru um ákvörðun Hamps.
Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira