Fyrirtækið Saga fjárfestingar hf. stofnað á Akureyri 5. október 2006 00:01 Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
Stofnað hefur verið á Akureyri fyrirtækið Saga fjárfestingar hf. sem leggja mun áherslu á sérvalin verkefni á fyrirtækjamarkaði. Stofnhluthafar eru Hildingur ehf. (KEA) með 25 prósenta hlut, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson með 25 prósenta hlut, en hann verður jafnframt forstjóri, Sparisjóður Norðlendinga og Sparisjóður Svarfdæla með 13 prósenta hlut hvor og fjárfestar, meðal annars starfsmenn og lykilstjórnendur með 24 prósenta hlut. Stofnhlutafé er tveir milljarðar króna en ætlunin er að auka það í fjóra milljarða á næstu 18 mánuðum. Þorvaldur Lúðvík hefur því yfirgefið Kaupþing, en hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra eigin viðskipta bankans. Með honum hverfur á braut hópur starfsmanna úr stöðutöku bankans. Þorvaldur Lúðvík segir að hópurinn taki þátt í stofnun Sögu fjárfestinga og leggur á það áherslu að viðskilnaður hópsins við Kaupþing sé gerður í mesta bróðerni og gangi hann sáttur á brott til móts við ný ævintýri. Ég var þarna í tíu ár og stofnaði veltubók KB banka. Meðal verkefna Sögu fjárfestinga verður stöðutaka á verðbréfamörkuðum, samrunar og yfirtökur, fjárfestingalán og útlán auk meðfjármögnunar. Þá verður Saga viðskiptavaki með hlutabréf og skuldabréf. Umsóknarferli um leyfi til að starfrækja fjárfestingabanka er í undirbúningi en gert er ráð fyrir að það taki nokkra mánuði.
Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira