Meðalhitinn í Norðursjó var þremur gráðum hærri í október en í meðalári.
"Við höfum miklar áhyggjur af þessu," hefur fréttavefur Politiken eftir Tore Johannessen hjá Hafrannsóknastofnun Danmerkur.
Breytt hitastig hafsins getur haft mikil áhrif á æxlunarmöguleika fiskistofna, auk fleiri tegunda.
"Hækkað hitastig mun virka hvetjandi á nokkrar lífverur í hafinu, meðal annars verða breytingar í þörungaflórunni " og það er eitthvað sem við óttumst meira en nokkuð annað," sagði Johannessen.