Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Kjartan Kjartansson skrifar 19. október 2026 09:36 MMX-geimfarið sem á að safna sýnum á Fóbosi, öðru af tveimur tunglum Mars. AP/Kyodo News/Yuika Kawazoe Japönsku geimfari sem er ætlað að safna sýnum frá Fóbos, öðru af tveimur smátunglum Mars, verður skotið á loft á morgun. Markmiðið er að varpa ljósi á uppruna tunglanna tveggja.
Ólíkar tilgátur eru uppi um hvaðan Fóbos og og Deimos, minna tunglið, komu. Sumir vísindamenn telja tunglin leifarnar af braki eftir að stórt fyrirbæri rakst á Mars í fyrndinni. Aðrir telja að þau séu smástirni sem Mars fangaði. MMX-leiðangri japönsku geimstofnunarinnar er ætlað að svara þessum spurningum með því að taka jarðvegssýni úr Fóbosi. Kiyoshi Kuramoto, aðalvísindamaður leiðangursins, segir AP-fréttastofunni að hann sé þess fullviss að sýnin dugi til þess að komast að niðurstöðu. Einnig stendur til að fljúga farinu fram hjá Deimosi. Kuramoto telur sýnin frá Fóbosi veiti einnig upplýsingar um Deimos vegna þess að talið sé að tunglin tvö eigi sér sama eða svipaðan uppruna. Misheppnaðar tilraunir til lendingar Það verður þó hægara sagt en gert að ná sýnunum frá Fóbosi. Rússar hafa nokkrum sinnum reynt að lenda geimfari á tunglinu en án árangurs. Fóbos er aðeins tuttugu til þrjátíu kílómetrar að þvermáli og þyngdarkraftur hans er aðeins einn tvöþúsundasti hluti af þyngdarkrafti jarðar. Vandasamt er að finna sléttan blett til lendingar. Fóbos líkist meira smástirni en fullburða tungli. Vísindamenn telja að hann kunni að hafa verið smástirni sem Mars fangaði eða hluti af braki úr stórum árekstri á rauðu reikistjörnunni. Myndin var tekin með HiRISE-myndavélinni um borð í MRO-brautarfarinu.NASA/JPL-Caltech/University of Arizona Fyrst er ætlunin að lenda könnunarjeppa sem Frakkar og Þjóðverjar smíðuðu sameiginlega. Hann á að kortleggja yfirborðið og finna heppilegan lendingarstað fyrir japanska farið þar sem það getur safnað sýnum. Japanir hafa reynslu af því að safna sýnum í geimnum og koma þeim aftur til jarðar. Tveir Hayabusa-leiðangrar söfnuðu þannig sýnum frá smástirnum og komu aftur heim árið 2010 og 2020. Fimm ára leiðangur Ferðalagið sem bíður MMX er rúmlega hálfur milljarður kílómetra. Geimfarið á að komast að Mars í ágúst á næsta ári. Næstu þrjú árin á það svo að hringsóla um Fóbos og safna gögnum. Áætlað er að farið skili sýnunum heim til jarðar árið 2031. Fóbos og Deimos eru nefndir eftir tveimur lausaleiksbörnum Aresar, stríðsguðs grískrar goðafræði, og ástargyðjunnar Afródítu. Í henni birtist Fóbos sem holdgervingur ótta og skelfingar á vígvellinum.
Japan Mars Geimurinn Vísindi Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira