Forstjóri ársins vinnur hjá Lego 15. nóvember 2006 06:45
Samtök stjórnenda í Danmörku völdu í síðustu viku Jørgen Vig Knudstorp, forstjóra danska leikfangaframleiðandans Lego, sem forstjóra ársins. Danska dagblaðið Börsen segir rökstuðning samtakanna fyrir valinu vera þá að Knudstorp hafi tekið sér fyrir hendur það ábyrgðarfulla starf að standa vörð um þá þjóðargersemi sem Lego sé. Þá vinni hann sömuleiðis að einni erfiðustu hagræðingu í fyrirtækjasögu landsins, sem meðal annars felur í sér að níu hundruð manns verður sagt upp í Billund í Danmörku á næstu þremur árum. Þá segir ennfremur að Knudstorp, sem er 37 ára og yngsti forstjórinn til að hljóta titilinn forstjóri ársins, hafi unnið gott starf við endurskipulagningu í rekstri Lego ásamt ungum stjórnendum fyrirtækisins, og „siglt fleyinu yfir á lygnan sjó," líkt og segir í Börsen. Rekstur Lego hafði verið í járnum í nokkur ár þegar Knudstorp tók við forstjórastarfinu fyrir rétt rúmum tveimur árum. Lego var rekið með talsverðu tapi fyrir ári en Knudstorp tókst með aðhaldsaðgerðum að snúa tapinu í 2,8 milljarða króna hagnað á fyrsta fjórðungi ársins. Fjölmiðlar hafa reyndar gert sér mat úr endurskipulagningu Knudstorps, sem fækkað hefur starfsfólki til að gera fyrirtækið samkeppnishæfara. Hægt hefur á framleiðslu á flestum vörum og eru líkur á að það nái ekki að anna eftirspurn fyrir jólaverslunina.
Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira