Viðskipti erlent

House of Fraser semur við birgja

Stjórn House of Fraser ætlar að semja við birgja um afslátt líkt og aðrar verslanir hafa gert.
Stjórn House of Fraser ætlar að semja við birgja um afslátt líkt og aðrar verslanir hafa gert.

Stjórn bresku verslanakeðjunnar House of Fraser ætlar að senda birgjum bréf í næstu viku þar sem þess er óskað að fyrirtækinu verði veittur afsláttur af vöruverði auk þess sem greiðslufrestur til birgjaverði lengdur.

Að breska dagblaðsins Times ætlar Don McCarthy, stjórnarformaður HoF að fara fram á 2 prósenta afslátt frá birgjum enda hafi ekki orðið neinar breytingar á samningum birgja og HoF síðan á sumardögum árið 2003. Stjórnir bresku verslananna Debenhams, Bhs, Arcadia og Marks & Spencer hafa þegar óskað eftir álíka kjörum hjá birgjum.

Times segir að stjórnir nokkurra verslanakeðja hafa óskað eftir því í júní síðastliðnum að birgjar veittu 1 prósents aflátt og framlengdu greiðslufrest sinn úr 30 dögum í 60. Marks & Spencer fór hins vegar fram á 5,5 prósenta afslátt.

Kaupum Baugs og fleiri fjárfesta á HoF lauk í síðustu viku. Breskir fjölmiðlar hafa haft eftir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra félagsins, að breskar verslanir bjóði margar hverjar upp á keimlíkt vöruúrval. Sé nauðsynlegt að krydda vöruúrvalið og hafi hann þegar boðað að nokkrum vörumerkjum í verslunum HoF verði skipt út fyrir önnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×