Almennt virðast niðurstöður þróast niður á við. Helgun starfsmanna fer hríðlækkandi og með tilliti til þess að árið 2025 verður Z-kynslóðin 27% starfsfólks í heiminum, er ekki laust við að margir hafi af þessu verulegar áhyggjur.
Því Z kynslóðin er jú líkleg til að horfa allt öðruvísi augum á framtíðina með tillit til vinnuveitenda og starfa.
Á dögunum fjallaði viðskiptavefurinn FastCompany um nokkuð áhugavert trend. Sem þó er ekki alveg nýtt af nálinni. Kannski frekar að verða meira áberandi.
Trendið snýst um það að hreinlega svissa út öllum yfirmönnum.
Já: Stjórnendastöðurnar eru lagðar niður í þeirri merkingu að viðkomandi sé yfirmaður.
Þetta þýðir ekki að stöðugildi með stjórnendaheiti séu ekki lengur til staðar innan fyrirtækja. Heldur eingönu það að viðkomandi telst ekki lengur yfirmaður.
Á ensku er talað um þetta nýja trend sem „The Great Unbossing.“
Að svissa út stjórnendum sem beinum yfirmönnum snýst í stuttu máli um að traustið er fært til starfsfólks og hverjum og einum gert að stjórna sjálfum sér og sinna sínu. Án þess að vera með yfirmann.
Sumir vilja meina að þessi af-stjórnunarleið, eða Unbossing, sé dæmi um hvernig atvinnulífið er að reyna að bregðast við hröðum breytingum með því að hugsa út fyrir boxið. Meðal annars með tilliti til Z-kynslóðarinnar sem svo sannarlega er sögð munu breyta nánast öllu.
Aðrir benda á að ekkert sé svo nýtt undir sólinni að það hafi ekki verið reynt áður. Meira að segja Grikkir til forna, prófuðu ýmsar leiðir í svipuðum dúr.
Þeir sem aðhyllast þessa leið, telja af-stjórnunina mögulega geta kynt undir helgun starfsmanna. Að það að geta stjórnað sér sjálfum muni hvetja fólk til dáða, auka á eldmóð og áhuga og fyrir vikið auka á helgun starfsfólks.
Hvað svo sem verður, má telja líklegt að á næsta áratug muni ýmislegt breytast verulega í stjórnun fyrirtækja og stofnana. Þar sem nýir tímar eru að taka við.
Hér að neðan má sjá viðtal við Önnu Signý Guðbjörnsdóttur hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Kolibri, en það styðst við „holacracy“ aðferðarfræðina í sínum rekstri. Sú aðferðarfræði gengur einmitt út á að hver einstaklingur er í ábyrgð fyrir sjálfum sér og sínum störfum og því telst enginn vera yfirmaður eða undirmaður.