Erlent

Óttast um efnahag Úkraínumanna hækki verð á gasi

Svo kann að fara að þjóðaframleiðsla Úkraínumanna lækki um fimm prósent á þessu ári og verðbólga aukist um allt að þrjátíu prósent ef verð á rússnesku gasi, sem selt er til Úkraínu, fjórfaldast líkt og Rússar hafa krafist. Þetta er haft eftir háttsettum embættismanni í úkraínsku stjórninni. Deilur Rússa og Úkraínumanna um verð á gasi hafa siglt í strand og á nýársdag skrúfaði rússneska gasfyrirtækið Gazprom fyrir gasleiðslur frá Rússlandi til Úkraínu. Þeir segja Úkraínumenn hafa stolið gasi fyrir mörg hundruð milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×