Erlent

Telja meirihluta þingmanna spilltan

Meirihluti þingmanna er spilltur að mati meirihluta Bandaríkjamanna samkvæmt skoðanankönnun Gallup fyrir CNN og USA Today. Ekki nóg með það heldur telja þeir að um fimmtungur þingmanna sé mjög spilltur.

Þetta gæti haft áhrif í þingkosningum í nóvember næstkomandi því 55 prósent aðspurðra sögðu spillingu vera mikilvægasta eða eitt mikilvægasta málið sem réði afstöðu þeirra í kjörklefanum þegar þar að kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×