Innlent

Tekinn á 142 kílómetra hraða

Lögreglan í Keflavík stöðvaði tvo ökumenn eftir að þeir höfðu mælst á of miklum hraða í dag. Annar var stöðvaður á Reykjanesbraut þar sem hann ók á 112 kílómetra hraða en hinn síðari steig bensíngjöfina enn fastar því hann mældist á 142 kílómetra hraða á Grindavíkurvegi.

90 kílómetra hraði er á báðum stöðunum þar sem mennirnir voru teknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×