Lögreglan í Reykjavík stöðvaði 120 ökumenn upp úr miðnætti í nótt. Fimm þeirra reyndust vera undir áhrifum áfengis og þar af var einn réttindalaus. Auk þess voru tveir rétt undir leyfilegum mörkum og fengu ekki að halda áfram akstri í nótt, en verða hinsvegar ekki sektaðir.
Allir ökumenn virtu stöðvunarmerki lögreglu.