Ísraelar hyggjast halda áfram aðgerðum á Gaza 3. júlí 2006 23:00 MYND/AP
Ísraelsk stjórnvöld hafa hafnað því að láta fimmtán þúsund Palestínumenn lausa úr ísraelskum fangelsum í skiptum fyrir ísraelska hermanninn, Gilad Shalit, sem hefur verið í haldi herskárra Palestínumanna í rúma viku. Ísarelum var gefinn frestur til klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma til að verða við þessum kröfum ellegar yrði gripið til óyndisúrræða. Hryðjuverkamennirnir skilgreindu ekki nánar hvað gert yrði. Ekki var búist við því að Ísraelar yrðu við kröfunum og það fékkst staðfest í dag þegar Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísarels, sagði að stjórnvöld myndu ekki láta kúga sig. Aðgerðum á Gaza, sem miða að því að tryggja frelsi hermannsins, verður því framhaldið. Snemma í dag var skotið á svæði á norðurhluta Gaza og hersveitir fóru inn á það svæði í fyrsta sinn síðan aðgerðir hófust á þriðjudagskvöldið fyrir tæpri viku. Loftárásir voru einnig gerðar á skotmörk á svæðinu og greint frá því að tveir herskáir Palestínumenn hefðu fallið. Svo bárust fregnir af því í kvöld að skotið hefði verið á Palestínumenn á Gaza, einn fallið og tveir særst. Palestínumennirnir munu hafa verið að koma fyrir sprengjum þegar ráðist var á þá. Átta herskáir Palestínumenn munu því hafa fallið frá upphafi átaka á þriðjudagskvöldið fyrir tæpri viku. Vopnaður armur Hamas-samtakanna lýsti því yfir í dag að hann myndi á ný hefja árásir á skotmörk í Ísarel ef aðgerðum Ísarela á Gaza verði ekki hætt.
Erlent Fréttir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Ekið á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Sjá meira