Árásum á Gaza haldið áfram 10. júlí 2006 19:00
Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að halda árásum á Gaza áfram svo lengi sem þurfa þykir. Þau segja ekki koma til greina að láta palestínska fanga í skiptum fyrir ísraelskan hermann sem skæruliðar hafa í gíslingu, eins og leiðtogi Hamas-samtakanna stakk upp á í dag. Ísraelar tóku upp þráðinn í dag á Gaza-ströndinni þar sem frá var horfið og féllu þrír palestínskir skæruliðar í loftárás hersins. Á sjötta tug Palestínumanna hefur beðið bana í árásum síðustu daga, þar af tuttugu saklausir borgarar. Handtaka ísraelska hermannsins Gilad Shalits er öðrum þræði ástæða árásanna en palestínskir skæruliðar, tengdir Hamas-samtökunum, hafa hann í gíslingu sinni. Í morgun ræddi leiðtogi Hamas við blaðamenn í útlegð sinni í Sýrlandi en hann birtist sjaldan opinberlega þar sem Ísraelar sitja um líf hans. Málið er hins vegar ekki svona einfalt því stjórnvöld í Jerúsalem segja ekki koma til greina að láta einn einasta fanga í skiptum fyrir ísraelska hermanninn. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, ítrekaði þetta svo vandlega í dag að enginn ætti að vera í minnsta vafa á eftir. Olmert sagði að árásunum yrði því haldið áfram um óákveðinn tíma til að knýja Palestínumenn til að láta hermanninn lausan og hætta eldflaugaárásum yfir ísraelsku landamærin. Hann kvaðst svo ætla að halda lokun ísraelskra landnemabyggða á Vesturbakkanum til streitu þrátt fyrir ólguna á Gaza.
Erlent Fréttir Mest lesið Hundrað prósenta tollaaukning á allar vörur frá Kína Erlent Kourani fluttur á Klepp Innlent Hvattir til að leggja tímanlega af stað Innlent Beygjuvasarnir stórhættulegir Innlent Nóbelsnefndin rannsakar mögulegan leka og óvenjuleg veðmál Erlent Halla og Þorbjörg á leið til Kína Innlent Gengst við því að hafa grandað farþegaþotunni Erlent Tapsárir unglingar lofuðu að lækka Innlent Tveir þriðju vilja að Ísland dragi sig úr Eurovision Innlent Þarf að una áminningu í máli móður í forsjárdeilu Innlent Fleiri fréttir Hundrað prósenta tollaaukning á allar vörur frá Kína Nóbelsnefndin rannsakar mögulegan leka og óvenjuleg veðmál Gengst við því að hafa grandað farþegaþotunni Fjöldi látinn eftir að verksmiðja sprakk í loft upp Norska ríkisstjórnin slær skipagöngin út af borðinu Hótar að beita Hamas hörðu afvopnist samtökin ekki Nóbelsnefndin hafi valið pólitík fram yfir frið Settu forsetann af vegna glæpaöldu í Perú Venesúelskur stjórnarandstæðingur hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Taívanir vilja reisa varnarhjúp gegn Kína Harðar árásir á Kænugarð í nótt Norðmenn uggandi vegna mögulegra viðbragða Trump Vopnahlé tekur gildi Annar andstæðingur Trumps ákærður Hægagangur á rússneska hagkerfinu Sagðir skoða að færa Eurovision verði Ísraelum meinuð þátttaka Dómur þyngdur yfir nauðgara Pelicot Myndir: Hágrátið og hlegið þegar fréttir bárust af friðarsamkomulagi Von um frið en uggur um efndir Trump segir Hamas og Ísraela hafa náð samkomulagi Kenna Evrópu- og Bandaríkjamönnum um litlar líkur á friði Handtekinn fyrir að kveikja skæðasta eld Los Angeles Fá Nóbelsverðlaun fyrir þróun málmlífrænna grinda Tengdasonur Trumps mætir til Egyptalands Dularfull brotlending nærri Area 51 Trump og „maðurinn með ljáinn“ hóta að greiða ekki laun Engan óraði fyrir framhaldinu Súdanskur uppreisnarleiðtogi sakfelldur fyrir stríðsglæpi Nýkjörinn bæjarstjóri alvarlega særður eftir stunguárás Sjá meira