Ung dönsk ferðakona veiktist hastarlega í Þórsmörk í gærkvöldi og eftir samráð við lækna var ákeðið að óska eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hún sótti konuna og lenti með hana við Borgarspítalann um klukkan ellefu í gærkvöldi. Ekki liggur fyrir hvað gekk að konunni, en hún mun ekki vera í lifshættu.
