Fólki verður fjölgað hjá Icelandair 16. október 2006 17:55
FL Group hefur selt allt sitt hlutafé í Icelandair. Forstjóri félagsins segir mikla vaxtarmöguleika í flugi og ferðaþjónustu og áætlar að starfsfólki verði fjölgað en ekki fækkað með nýjum eigendum. Þrír hópar fjárfesta hafa keypt 50,5% hlut í Icelandair Group. Stærsta hlutinn, 32%, keypti Langflug ehf. sem er að mestu í eigu Samvinnutrygginga með Finn Ingólfsson í fararbroddi, þá er það Naust ehf., eða eigendur Essó, sem keypti rúm 11% og svo Blue Sky Transport Holding sem er að mestu í eigu Ómars Benediktssonar sem keypti rúm 7% en Ómar var áður einn af eigendum Íslandsflugs. Þriðjungur hlutafjárins verður boðinn fjárfestum og almenningi í almennu hlutafjárútboði. Nú þegar er hins vegar búið að ráðstafa um 67% hlutafjárins en 4% eru tekin frá fyrir starfsmenn sem hafa áhuga og lykilstjórnendur ætla sömuleiðis að kaupa, þeirra á meðal Jón Karl Ólafsson forstjóri. Hann segir gríðarlega vaxtarmöguleika í ferðaþjónustu og flugrekstri og hefur mikla trú á fyrirtækinu. Stefnubreyting verði hins vegar ekki með nýjum eigendum, þetta sé langtímafjárfesting í þeirra huga en áætlað sé að vaxa um 10-15% á ári næstu árin. Jón Karl neitar því að hagræðing fylgi nýjum eigendum Icelandair, þvert á móti þurfi að fjölga starfsmönnum til að mæta fyrirhuguðum vexti.
Fréttir Innlent Mest lesið Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Innlent Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Innlent Myndataka í lágloftunum vekur athygli Innlent Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Erlent Fleiri fréttir Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Sjá meira