Fiskiskipið Gandí VE, sem nánast endastakkst í skipalyftunni í Vestmannaeyjum í gær, þegar sleðar í lyftunni brustu, náðist á flot í gærkvöldi.
Skemmdir á skipinu reyndust ekki meiri en svo að því var þegar siglt áleiðist til Hafnarfjarðar til að fara í slipp þar. Lyftan er hinsvegar stór skemmd. Mennirnir tveir, sem meiddust þegar óhappið varð, eru á góðum batavegi. Annar fékk að fara heim af sjúkrahúsinu eftir að gert hafði verið að sárum hans, hinn var lagður inn til frekari rannsókna en er ekki talinn alvarlega meiddur.