Tvö íslensk fyrirtæki meðal þeirra efstu á Europe´s 500 20. október 2006 11:12
Tvö íslensk fyrirtæki eru meðal þeirra tíu efstu á lista samtakanna Europe's 500 yfir framsæknustu fyrirtæki í Evrópu fyrir árið 2006. Alls eru fimm íslensk fyrirtæki á listanum og hefur störfum hjá þeim fjölgað hraðast að meðaltali í þeim 25 Evrópulöndum sem listinn nær til. Samtökin Europe´s 500 hafa undanfarin tíu ár birt lista yfir þau 500 fyrirtæki sem þykja hafa vaxið hvað hraðast í Evrópu þegar horft er til veltu og starfsmanna. Í ár er miðað við vöxt frá árslokum 2002 til ársloka 2005. Alls eru fimm íslensk fyrirtæki á listanum og er Avion Group þar efst í öðru sæti á eftir franska fyrirtækinu Gameloft. Hefur starfsmönnum Avion fjölgað um fjögur þúsund eða nærri 600 prósent á tímabilinu. Avion var einnig í öðru sæti á listanum í fyrra. Kögun er næst íslenskra fyrirtækja á listanum, í sjöunda sæti, en þar hefur starfsmönnum fjölgað úr um 120 í 1250 frá 2002 til 2005. Hin íslensku fyrirtækin á listanum eru stoðtækjafyrirtækið Össur í 67. sæti, fjármálafyrirtækið Creditinfo Group, sem er meðal annars í eigu KB banka og Landsbankans, í 81. sæti og hugbúnaðarfyrirtækið TM Software 122. sæti. Fram kemur í tilkynningu frá Europe´s 500 að störfum hjá íslensku fyrirtækjunum hafi fjölgað að meðaltali um 72 prósent á ári, eða samtals um nærri 600 á þessu þriggja ára tímabili. Er það mesti vöxtur fyrirtækja í þeim 25 löndum sem listinn nær til.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fleiri fréttir Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Sjá meira