Erlent

4 týndu lífi í troðningi

Að minnsta kosti fjórir týndu lífi og átján slösuðust í troðningi sem varð fyrir utan hof Hindúa í Orissa-héraði í Austur-Indlandi í morgun. Mörg þúsund hindúar höfðu safnast saman fyrir utan hofið við upphaf hátíðarhalda.

Troðningur varð þegar hlið hofsins var opnað og fjögur þúsund manns reyndu að riðjast inn í einu. Lögregla var þegar kölluð á vettvang. Hofið er einn helsti viðkomustaður pílagríma á ferð sinni um Indland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×