Það varð nokkur þögn þegar ljósin slokknuðu í Brussel, á enn einum ráðherrafundi Evrópusambandsins, í dag. Eftir nokkurt þóf var ákveðið að halda fundinum áfram, við kertaljós.
Og skömmu síðar komu ljósin á aftur. Rafmagnsleysið varaði ekki nema rúman hálftíma. Og tilefni fundarins ? Jú, þar voru orkumálaráðherrar Evrópusambandsins að ræða öryggi í orkumálum.