Gráglettinn háhyrningur Óli Tynes skrifar 30. nóvember 2006 16:46 Keikó heitinn, háhyrningur MYND/ Einar Ólason
Gestir í skemmtigarðinum SeaWorld í San Diego, fylgdust skelfingu lostnir með því, í gær, þegar háhyrningur beit þjálfara sinn tvisvar í fótinn og dró hann niður á botn laugarinnar. Þjálfarinn er á sjúkrahúsi, og ekki alvarlega slasaður. Háhyrningurinn er kvendýr sem heitir Kasatka. Í lokaatriði sýningarinnar kom hún úr kafi á mikilli ferð, til þess að þjálfarinn gæti stungið sér ofan í laugina af hausnum á henni. Áhorfendur sáu þjálfarann og Kasötku hverfa ofan á botn laugarinnar, en þar beit hún í fót þjálfarans og hélt honum föstum, í innan við mínútu. Þegar þau komu upp á yfirborðið reyndi þjálfarinn að róa skepnuna með því að strjúka á henni bakið, en hún greip hann aftur í kjaftinn og fór með hann niður á botn. Þegar þau komu upp eftir það, tókst þjálfaranum að synda að laugarbakkanum. Ljóst er að Kasatka hefði hæglega getið bitið fótinn af þjálfaranum, eða drepið hann með öðrum hætti. Þetta er því frekar talin gráglettni, en nokkuð annað. En gráglettni rúmlega tveggja tonna háhyrnings, getur óneitanlega verið dálítið óþægileg.
Erlent Mest lesið Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Alvarlega slasaður eftir hnífstunguárás Innlent Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Innlent Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Erlent Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Fleiri fréttir Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Sjá meira