Rússneska þingið framlengdi í dag bann við dauðarefsingum, í þrjú ár. Dauðadómar eru mikið hitamál í Rússlandi, þar sem áhrifamiklir harðlínumenn sækja fast að dauðarefsingar verði teknar upp á nýjan leik.
Dauðadómar eru enn til í Rússneskum lögum, en þingið hefur lagt bann við að þeim yrði framfylgt, síðan árið 1996.