Mannfólkið getur víst flogið 30. desember 2006 14:15 Vængirnir eru reyndar ekki alveg svona en Íkarus reyndi að nota þá en tókst ekki jafn vel. MYND/Vísir
Mannskepnuna hefur frá örófi alda dreymt um að geta flogið um loftin blá og það er akkúrat það sem einum svissneskum manni hefur tekist að gera. Hann smíðaði sér vængi, setti á þá hreyfla og hoppar svo úr flugvélum og flýgur uns eldsneytið klárast. Lendir hann þá mjúklega með aðstoð fallhlífar. Maðurinn heitir Yves Rossy og er fyrrum herflugmaður og flugfíkill. Hann hafði reynt allt sem hugsast gat en fannst hann aldrei vera nógu lengi á lofti. Hann á meðal annars fleiri en 1.200 fallhlífarstökk að baki. Vængirnir sem hann útbjó sér eru úr ýmsum málmum, trefjagleri, kevlar og koltrefjum. Þeir eru settir út með rafmótor og eru alls 10 fet á lengd. Við vængina festir hann síðan hreyfla sem ganga fyrir keróseni og eru þeir fjórir talsins og framleiða um 22 kílóa þrýsting. Með þeim getur hann ekki aðeins haldið hæð sinni heldur einni aukið við hana - en aðeins í um sex mínútur. Hann breytir um stefnu og hæð með því að hreyfa lappirnar eða að halla sér og hann raunverulega flýgur þannig sjálfur án allra stjórntækja. Mest hefur hann náð um 115 mílna hraða. Hægt er að sjá manninn fljúga á heimsíðu hans en hana má finna hér. Fréttavefur Daily Mail skýrir frá þessu.
Erlent Fréttir Mest lesið Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Fleiri fréttir Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sundrung í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við drápi á ungmenni Fjarlægja mælitæki sem fylgist með AMOC nærri Íslandi Frítt til tannlæknis, skattalækkanir og gamall stórhátíðardagur endurvakinn Nýr El niño gæti orðið sá sterkasti sem sögur fara af Ætla að senda fleiri hælisleitendur á brott Skaðabótasjóður Trumps í hættu Ellefu látnir í umfangsmiklum árásum Rússa Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Áframhaldandi átök í Líbanon þrátt fyrir samkomulag Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Sjá meira