Fersk nálgun 5. febrúar 2007 09:00 kimono og curver Platan Kimono + Curver er komin út á vegum útgáfufyrirtækisins Tíma.
Hljómsveitin Kimono og listamaðurinn Curver hafa gefið út plötuna Curver + Kimono. Um er að ræða nýja útgáfu á fyrstu plötu Kimono, Mineur Agressif. „Við tölum ekki um þetta sem „remix“ plötu þótt hún sé þannig í grunninn. Við unnum þetta sem nýja plötu,“ segir Curver.Furðulegar útgáfur Forsaga plötunnar er sú að Curver tók upp Mineur Agressif fyrir Kimono fyrir fjórum árum. Í hljóðblöndunarferlinu var eitt lag tekið fyrir á dag en eftir að því var lokið fögnuðu þeir félagar áfanganum með að gera furðulegar „freak mix” útgáfur af laginu sér til gamans. Eftir að hljóðin voru teygð, sveigð og beygð varð útkoman að einhverju sem gæti legið á milli dub, post-rock og noise.Lagerinn kannaður Nokkru eftir að Mineur Agressif var gefin út kom upp sú hugmynd að gera eitthvað með þessar nýju útgáfur. Eftir að lagerinn var endurkannaður töldu Kimono og Curver að þar lægi fyrir heilsteyp plata með ögrandi og ferskri nálgun.Skemmtilegur hljóðheimur „Það var frábært að vinna með þeim,“ segir Curver um samstarfið með Kimono. „Við vinnum mjög vel saman og erum miklir félagar. Þetta er skemmtilegur hljóðheimur sem bandið er með og þeir hafa leyft mér að koma fram með mínar hugmyndir líka. Okkur fannst þessi tónlist vera miklu skrítnari fyrir fjórum árum síðan. Fólk er kannski opnara fyrir þessu núna enda er meiri „sækadelísk“ bylgja í gangi núna.“
Mest lesið Walking Dead-leikkona látin Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Terry Reid látinn Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira