Viðskipti innlent

Loksins opnast vefgátt Íslands

Guðbjörg Sigurðardóttir er skrifstofustjóri skrifstofu upplýsingasamfélagsins í forsætisráðuneytinu.
Guðbjörg Sigurðardóttir er skrifstofustjóri skrifstofu upplýsingasamfélagsins í forsætisráðuneytinu.

Vefurinn Ísland.is verður opnaður með viðhöfn miðvikudaginn 7. mars næstkomandi, en verkefnið var fyrst kynnt á UT-deginum í fyrra. Kynning á vefnum verður svo meðal annars á sýningunni Tækni og vit sem hefst í Fífunni í Kópavogi daginn eftir.

„Allt hefur þetta sinn þróunartíma," segir Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri skrifstofu upplýsingasamfélagsins í forsætisráðuneytinu þegar haft er á því orð að vefurinn hafi fyrst verið kynntur fyrir ári og kveðst ekki telja að fólk verði fyrir vonbrigðum með nýja vefinn. „Þessi þjónustuveita er mjög stórt skref í þá átt að bæta þjónustuna við borgarana."

Guðbjörg segir sömu grunnhugsun við lýði og lagt var upp með í þróun vefjarins. „Við lítum á þetta sem nokkurs konar leiðarvísi að opinberri þjónustu. Þarna verður að finna margvíslegar hagnýtar upplýsingar og tilvísanir á efni og þjónustu sem er að finna á vefjum ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga."

Inni á Íslandi.is verður til að mynda hægt að nálgast nánast öll eyðublöð ríkisins, þar verða grunnupplýsingar um öll sveitarfélög og allar stofnanir landsins auk þess þar verða upplýsingar fyrir innflytjendur á nokkrum tungumálum, auk orðskýringa sem nýtast eiga bæði innflytjendum og almenningi sem kann að staldra við ókunnug hugtök stjórnsýslunnar.

Vefurinn verður hins vegar áfram í þróun og leggur Guðbjörg áherslu á að þarna sé um að ræða fyrstu útgáfu hans. Þótt opnunin sjálf sé stórt skref í að auka opinbera þjónustu verði áfram bætt við vefinn. Til dæmi segir hún að auka eigi efni á erlendum tungum, en fyrst í stað verði þarna lágmarksupplýsingar fyrir innflytjendur.

Sömuleiðis segir Guðbjörg áherslu lagða á aðgengismál í hönnun Íslands.is. „Öll framsetning er með þeim hætti að hún nýtist til dæmis blindum og sjónskertum, lesblindum og öðrum hópum sem þarf að mæta í hönnun og framsetningu texta."

Vefurinn er jafnt hugsaður fyrir almenning og fyrirtæki og er samstarfsverkefni bæði ríkis og sveitarfélaga sem átt hafa fulltrúa í stýrihópi um gerð hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×